Núgildandi yfirlitsskrá
Árið 2007 samþykkti íslenska ríkisstjórnin tillögu menntamálaráðherra og umhverfisráðherra að nýrri yfirlitsskrá yfir fyrirhugaðar tilnefningar Íslands á heimsminjaskrá UNESCO. 31. janúar 2011 var UNESCO tilkynnt formlega að ný yfirlitsskrá hefði tekið gildi fyrir Ísland og skráin frá 2001 félli þar með úr gildi. Á yfirlitsskrá yfir fyrirhugaðar tilnefningar Íslands eru nú eftirtaldir staðir:
Náttúru- og menningarminjar:
- Breiðafjörður (staðlaðar upplýsingar fyrir yfirlitsskrána)
Náttúruminjar:
- Þingvallasvæðið (staðlaðar upplýsingar fyrir yfirlitsskrána)
- Vatnajökulsþjóðgarður (staðlaðar upplýsingar fyrir yfirlitsskrána)
- Mývatn og Laxá (staðlaðar upplýsingar fyrir yfirlitsskrána)
- Torfajökull (staðlaðar upplýsingar fyrir yfirlitsskrána)
Menningarminjar:
- Íslenskar torfbyggingar ásamt tengdu búsetulandslagi - raðtilnefning (staðlaðar upplýsingar fyrir yfirlitsskrána)
- Víkingaminjar - alþjóðleg raðtilnefning (staðlaðar upplýsingar fyrir yfirlitsskrána)